top of page

Útgáfuhóf!

Hóf til að fagna útgáfu bókarinnar Þannig var það eftir norska höfundinn Jon Fosse, verður haldið í Gunnarshúsi að Dyngjuvegi 8, Reykjavík þann 18. apríl næstkomandi klukkan 17:00.


Um er að ræða leikrit – eintal, í einum þætti, sem fyrst var gefið út árið 2019 og birtist nú í íslenskri þýðingu Kristrúnar Guðmundsdóttur.


Jon Fosse er fæddur árið 1959 og er eitt þekktasta leikritaskáld Norðmanna. Leikverk hans hafa verið sviðsett um allan heim, þar af þrjú á Íslandi. Jon hefur einnig gefið út skáldsögur, ljóðabækur, barnabækur, ritgerðasöfn auk þess að vera þýðandi og hefur unnið til fjölda verðlauna bæði í Noregi og erlendis.


Árið 2015 hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þríleikinn

Andvaka, Draumar Ólafs og Kvöldsyfja (Hjalti Rögnvaldsson þýddi á íslensku).


Ekki láta þessa framhjá ykkur fara.



Nýlegar færslur

Safn

Fylgstu með

  • Grey Instagram Icon
  • Grey Facebook Icon
bottom of page